Azrael!
Velkomin!

19. mars 2007
Loksins komnar myndir af ferð sem var farin í janúar :)
Frábær ferð uppí bústað, en best er að láta myndirnar segja sína sögu
Svo vil ég minna á röfl síðuna mína á Joingi.blogspot.com

28. júlí 2006
Bætti við myndum af góðu partýi sem var seinasta föstudag.
2 pör frá Danmörku voru í heimsókn og var þeim kynnt fyrir íslenskri gestrisni og singstar :)
Sungið var langt fram á nótt og margt gott drukkið. og svo í morgunmat var boðið uppá soldið gott ;)
Kvöldið eftir kíktum við á næturlíf Reykjavíkur en því miður voru engar myndir teknar þá..eða eiginlega
sem betur fer :p

Myndir af Noregsferðinni eru byrjaðar að detta inná heimasíðu TKD deildar ÍR

22. maí 2006
Jæja, ákvað að smella inn myndum frá laugardeginum.
Fór í húsdýragarðinn og fraus næstum í hel. Og það á að vera komið sumar???!!?!?
meira vitleysan :)
Ég á von á því að fleiri myndir muni koma inn á komandi sumri.
Ætlunin er nefnilega að fara til Noregs í enda júní og taka þátt í æfingarbúðum TTU
Vonandi kem ég ekki heim í sjúkraflugi ;)

22. febrúar 2006
Nýtt ár komið...
og með því komu nýjir straumar.
Eftir harða baráttu við sjálfan mig ákvað ég að láta eftir aðsetja upp "blogg"
Ég vill heldur kalla þetta rafraus, hljómar mun skemmtilegra og lýsir betur hvað er í gangi

Þetta netgaul er á joingi.blogspot.com
Njótið ;)

26. desember 2005
Jólin komin og farin....næstum því :)
Það er á tímum sem þessum að maður fer að hugsa um farin veg og það sem hefur gerst á þeirri slóð
Þar sem dóttir mín fór til Austuríkis með móðufjölskyldunni yfir jólin, þá er frekar tómlegt hér heima
og hún kemur ekki fyrr enn eftir áramót. á meðan hef ég eytt tímanum í að lesa og hlusta á tónlist.
Mikið búið að vera að hlusta á Pink Floyd, Anathema, The Moody Blues og King Crimson.
Ekki mest upplífgandi tónlist sem til er, en nokkuð áhugaverð.
Bleh, ég flakka bara úr einu í annað.
Þessi texti sem kemur af plötunni Alternative 4 með Anathema segir að hluta af því sem ég er að reyna að koma frá mér

"When the silence beckons,
And the day draws to a close,
When the light of your life sighs,
And love dies in your eyes,
Only then will i realise,
what you mean to me."


ótrúlega fallegt lag líka.....

29. nóvember 2005
Jæja, það var komið að því að uppfæra síðuna aðeins :)
Ég er uppfullur af hugmyndum sem ég ætlaði að koma á framfæri hér, en þar sem ég er svo
afskaplega lélegur penni, þá hefur lítið gerst eins og er.

Fyrir 2 vikum tók ég þátt á íslandsmeistaramóti í Taekwondo, sem var haldið í Hagaskóla.
Að vísu keppti ég bara í Taeguk(Poomse) eða það sem margir þekkja sem Kata(í Karate) og
tókst mér að ná öðru sæti í mínum flokki, árangur sem ég er mjög sáttur við.
Nánari upplýsingar hér, ÍR frétt
En ég ætla mér að gera betur á næsta móti og taka þátt í sparring líka, reyndar spurning
hvort ég eigi eitthvað í þá sem eru yngri og í betra formi en ég :D En það er auka-atriði.

Næstu daga mun ég bæta við nokkuð af umfjöllunum um nokkrar plötur sem ég hef verið að hlusta á undanfarið.
Ætlunin er hinsvegar að hafa þau á ensku(bara svona til að halda enskunni við).
Læt þetta duga í bili, þangað til næst ;)

23. ágúst 2005
Jæja, það er búið að vera mikið að gera undanfarið, það helsta er ferðin vestur á Höfðaströnd.
Hún amma Jenný fór með okkur til að sýna okkur staðhætti. Var virkilega skemmtileg ferð.
Hef sett inn alveg slatta af nýjum myndum inná myndasíðuna, endilega kíkjið á ;)
Þar sem ég ákvað frekar að setja inn allar myndirnar núna en að setja þær inn síðar með skýringum
vantar mikið af texta undir myndirnar, en ég mun bæta þeim inn við betra tækifæri.

26. júní 2005
Var um helgina á Eyrabakka í boði Helgu (systir hennar Kristrúnar) og Árna.
Smellti fáeinum myndum af þessum viðburði. :)
Og svo eru hér nokkrar myndir af honum Gandalfi sem hafa safnast upp.

20. júní 2005
Jæja þá er þetta brúðkaupsstand loksins búið, á laugardaginn gifti hún Eva systir honum Ívari í
mjög fallegri ceremóníu. og vil ég óska öllum hjónunum innilega til hamingju með að hafa gengið
alla leið :)
Ég og Elísa tókum fáeinar myndir af þessu öllu saman.

13. júní 2005
Brúðkaupið afstaðið, það tókst bara nokkuð vel þrátt fyrir að hafa hrasað doldið í byrjun :p
Ég og Elísa vorum dugleg að taka myndir af brúðkaupinu
Þetta var í fyrsta skiptið sem ég var veislustjóri(eitthvað sem ég geri líklega ekki aftur),
en ég lærði helling af þessu. Það var mikið borðað og mikið drukkið(Otard var góður félagi)
Var ég eiginlega hissa á því að vera með lífsmarki í gær :)
En brúðkaupsstandinu er ekki lokið, hún Eva systir er að fara að gifta sig næstkomandi laugardag
og verður það af allt annarri stærðargráðu(bara nánasta fjölskylda)
Það er alger óþarfi að fara á hausinn við að gifta sig(það á að gerast eftirá) ;)

8. júní 2005
Jæja bara 3 dagar í giftinguna þeirra Kristrúnar og Bergs.
Hún var gæsuð á laugardaginn var og myndirnar frá því eru hér.
Fór á Iron Maiden í gær, og voru þeir bara þrælgóðir. Gaman að sjá að hljómsveitir geta
verið fireworks og annað dót (eins og risastóra eddie brúðu.)
Var afar óvenjulegt að þeir skyldu bara taka lög af fyrstu 4 plötunum þeirra.
veit ekki til þess að þeir hafi verið með svona concept tónleika áður.
Meira síðar ;)

29. maí 2005
Dagurinn í gær var langur enn góður :)
Tókum hann Berg í smáferð, vegna þess að hann er að fara að gifta sig þann 11. júní.
Áætlun var svona:

Brilljant dagur, ég var að vísu ekki nógu duglegur að taka myndir en hérna eru nokkrar.

20. maí 2005
Betra seint en aldrei :) Já ég hef ekki verið duglegur við að vinna í síðunni, en ég hef verið að íhuga nokkra möguleika með hana.
Ég ætla mér að breyta skipulagi hennar eitthvað og bæta við öðru efni inn.
Annars er það að frétta að ég er að stefna að því að ná græna beltinu í Taekwondo og
hef ákveðið að hætta alveg að spila EQ2 (hef ekki loggað mig inn í nokkra mánuði).
Skýringin á því er sú að ég spilaði Everquest Live í rúm 3 ár og náði mjög langt í þeim leik
og það tók mikla vinnu og tíma. Svolítið sem ég vil ekki eyða í annann leik.
Vil ég því óska félögum mínum í Harlequin alls hins besta.
Þeim hefur gengið mjög vel og eru eitt öflugasta guildið á Runnyeye servernum.

Ég á mikið safn af screenshots(yfir 1500 myndir) úr EQ live sem ég ætla að fara yfir og
setja hér á síðuna við tækifæri.
btw, til hamingju með daginn Jens :)

17. janúar 2005
Jæja, nú er síðan kominn upp að mestu leyti. Er að vinna í því að uppfæra allar síður eins og er.
Sýnið því smá biðlund :p

15. janúar 2005
Úff, serverinn sem þessi síða var upprunalega á varð fyrir áras og er því niðri eins og er.
En sem betur fer átti ég afrit af öllu saman, þannig að ekkert tapaðist hjá mér...því miður voru aðrir ekki svo heppnir
Þar sem síðan er nú á Símnet server er ekki pláss fyrir myndasafnið mitt, en joi.hobbiti.is ætti að koma upp í næstu viku

Nú er í undirbúningi spilamót á vegum Spuna Spilafélags.
Auglýsingu fyrir það mót er hægt að nálgast hér

Vildi á endanum benda ykkur á að þessi síða er hugsuð til að vera opnuð í hvaða browser(vafrara) sem er.
Er hún öll gerð með snilldarforriti sem heitir HTML-KIT.
Og mæli ég með sérstaklega Mozilla Firefox til að vafra á netinu þar að auki.
Bæði þessi forrit eru frí.

Get Firefox!

21. desember 2004
Jæja, betra seint en aldrei. Hef bara ekki gefið mér tíma til að bæta við því efni sem ég ætlaði mér að setja hér á síðuna
Vinnann, æfingar, tölvuleikir(half-life 2) og fleira hafa tekið minn tíma.
oh well. Ég ætla mér að bæta úr því og hef verið að íhuga efni til að setja hér.
Hef breytt nokkrum hlutum hérna, sérstaklega tengt tónlist.
Þar að auki er ég með slatta af myndum sem ég ætla að bæta inn.
Gleðilega hátið ;)

26. september 2004
Það er búið að vera mikið að gera undanfarið hjá mér, þannig hef ekki haft tíma til að vinna í síðunni sem skildi
En vonandi lagast það í vikunni.

Seinustu 6 mánuði eða svo, hef ég verið að æfa Taekwondo hjá ÍR
og ég verða segja að ég sé eftir því að hafa ekki byrjað á þessu fyrr. Heilsan hefur sjaldan verið betri og
hefur þetta gert mér svakalega gott á allan máta. Mæli eindregið að fólk prófi þetta, sama á hvaða aldri þið eruð ;)
Hún Elísa dóttir mín byrjaði á undan mér í þessu og er komin með gula beltið.

3. september 2004
Það hefur ýmislegt bæst við í myndasafnið en að öðru leyti hefur verið rólegt hér.
Megið búast við meira efni hér bráðlega og líka á Megahertz.is frá mér.

22. Júlí 2004
Búinn að vera mikið á flakki seinustu vikur, Reykholt, Grímsnes og svo frábær helgarferð sem
sem ég, bróðir minn Jens og dóttir mín Elísa fórum til Norðurland Vestra.
Þar skoðuðum við menningarhátið á Blönduósi, gamla torfbæinn Glaumbæ, Grettislaug(hittum frábæra nýja sjálendinga þar)
Sauðárkrók(Sheep River Hook..samkvæmt Lonely Planet :p)(þakkir til Heru fyrir frábæra gestrisni), Vesturfarasafnið
á Hofsósi og svo enduðum við á Hólum í Hjaltadal. Þessi gamli biskupstól kom mér mikið á óvart fyrir náttúrufegurð
og alltof heita sundlaug(kræst mar! stóra laugin var 37c og heiti potturinn var 39c!). Var ljúft að vera þarna.
Er búinn að bæta við myndum úr þessari ferð inní myndasafnið :).

6. Júlí 2004
Ég er ekki enn búinn að jafna mig eftir Metallicu tónleikana, og ég er ekki viss um að ég vilji það :)
Þetta eru einfaldlega bestu tónleikar sem ég hef farið á og meiri segja þessi mikli hiti sem var þarna truflaði mig lítið.
Held meira að segja að Metallica hafi ekki átt von á þessum móttökum, það var sungið hátt með hverju lagi
einsog það hafi verið æft vel fyrir tónleikana. þetta var svakaleg upplifun og ég verð pottþétt á svæði A næst :p

Myndir og fleiri umfjallanir hafa bæst við.
Plus for those who cant understand Icelandic i have finally started to translate some of the shit i have here,
so rest easy ;)

24. Júní 2004
Vóóhóó, fór á Deep Purple í gær ásamt Jensa bróður, pabba, Árna bróður pabba og honum Jónsa.
Damn, þetta var mun betra en ég hafði átt von á, þótt að þessir kallar séu svona gamlir
þá hafa þeir enn gaman af að spila músík. Þakið ætlaði að rifna af húsinu þegar þeir tóku "Smoke on the water"
Ég var feginn að hafa ekki misst af þessu, en það sem kom mér mest á óvart var upphitunarbandið Mánar.
Þeir voru vel æfðir og eiturþéttir og voru með þrusu program, gamlir slagarar frá þeim og Uriah Heep.
Brilljant tónleikar útí gegn. Þó skyggði fyllerí tveggja hálfvita fyrir aftan okkur á þetta þegar á leið.
Að svona fávitar ættu að vera heima hjá sér að drekka og leyfa okkur hinum að njóta þess að vera á brill tónleikum.
Jæja....2 vikur í Metallica....18 þús. manns. sheeeeeesss....ekki líst mér vel á það :(

Bætti við fleiri myndum inn og svo nokkrar umfjallanir, check it out ;)





Jesus saves. Allah protects. Cthulhu thinks you'd make a nice sandwich. - anon
Ph'nglui mglw'nafh Cthulhu R'lyeh wgah'nagl fhtagn.